10.6.2025 | 14:23
Það er ekkert grín að stíga á tær lyfjaframleiðenda
Nýlegar ákvarðanir Roberts F Kennedy Jr. heilbrigðisráðherra valda titringi meðal stjórnenda lyfjaframleiðenda vestra enda vega þær að fjárhagslegri afkomu framleiðenda þar sem þær raska rótgrónu sjálfsafgreiðslukerfi þeirra hjá heilbrigðiskerfinu:
- RFK rifti $700 milljóna samningi ráðuneytisins við Moderna sem ætlað var að flýta fyrir ferli nýs mRNA fuglaflensubóluefnis á markað. Ástæðan sem ráðuneytið gaf fyrir samningsslitum eru í klippu og hljóma kunnuglega þeim sem hafa efasemdir um öryggi Covid mRNA bóluefnanna.
- RFK snéri við einhverri umdeildustu ákvörðun sóttvarnaeftirlitsins CDC að gera Covid bóluefnin að hluta barnabólusetningar áætlunarinnar.
- Í gær tilkynnti forstjóri lyfjaeftirlitsins FDA um rannsókn á Covid bóluefna skaðanum. Niðurstöður rannsóknar lyfjaeftirlitsins munu að líkindum koma til með að hafa mikil áhrif um heim allan og m.a. auðvelda sköðuðum og fjölskyldum látinna að leita réttar síns.
- RFK sagði öllu ráðgjafaráði (ACIP) sóttvarnarstofnunarinnar CDC upp störfum í gær. Taldi ráðherrann óviðunandi hvernig einstakir meðlimir ráðsins tengdust lyfjaframleiðendum og færu með augljósum hætti í einu og öllu að þeirra vilja í störfum sínum.
- Ef til vill er stærsta ákvörðunin tengd Covid bóluefnunum bréf FDA (bréfið má lesa á heimasíðu lyfjaeftirlitsins) til Pfizer og Moderna þar sem þeim er gert að uppfæra fylgiseðil Covid bóluefnanna með upplýsingum um hættuna á hjartabólgu í kjölfar bólusetninga. Í bréfinu til lyfjaframleiðendanna er vísað til fjölda langtíma rannsókna, þar á meðal einnar sem sýnir að af 331 fengu 278 hjartatengdar aukaverkanir í kjölfar Covid bólusetninga.
Hlutabréf Pfizer hafa lækkað um 9% og Moderna um 32% frá áramótum.