Leita í fréttum mbl.is

177 Íslendingar hefðu enn verið ofanjarðar í árslok 2024

Íslendingum er hættara við að hverfa yfir móðuna miklu en frændum okkar á Norðurlöndum séu dánartölur þjóðanna 2024 bornar saman. Þannig hefðu 101 færri Íslendingar verið bornir til grafar á árinu 2024 miðað við Dani, 132 borið saman við Svía og 177 Íslendingar hefðu verið ofanjarðar í árslok 2024 í samanburði við Finna. En og aftur kemur í ljós hversu hæpin sú ráðstöfun var að gera landlækni síðustu ára að heilbrigðisráðherra. Þar með hvarf hvatinn sem ný aðkoma að heilbrigðisráðuneytinu hefði tryggt til að endurmeta ráðstafanir liðinni ára svo læra megi af mistökunum. Athygli vekur þögn samtaka lækna um áberandi lakari árangur á sviði heilbrigðisþjónustunnar hér á landi borðið saman við þjóðirnar á meginlandinu. Getur hugsast að menntun íslenskra lækna standist ekki lengur samanburð við menntun erlendra lækna? Hagsmunasamtök lækna geta ekki lengur skotið sér undan umræðunni um hvernig á því stendur að dánartíðni á Íslandi er með því hæsta sem þekkist meðal Evrópuþjóða þriðja árið í röð. Ætla þeir virkilega að sitja uppi með Svarta-Pétur fyrrv. landlæknis og núverandi heilbrigðisráðherra?Þróun fjölda látinna á Norðurlöndum 2024


Hættulegra að verða gamall á Íslandi

Elstu borgurum Íslands virðist hættara við að mæta skapara sínum en á hinum Norðurlöndunum þegar tölur um dauðsföll 90 ára og eldri á fyrstu 14 vikum síðustu ára eru bornar saman. Engar upplýsingar eru að hafa um fjölda örvunarbólusetninga sem elsti aldurshópurinn hefur þegið á liðnum árum og því er ekki hægt að álykta að dugnaður íslenska heilbrigðisstarfsfólksins við að halda mRNA Covid bóluefnunum að grunlausum eldri borgurum hjúkrunarheimilanna eigi þátt í hvernig komið er. Þróunin léttir nýstofnaðri ráðherranefnd vinnuna við að leita lausna á viðvarandi skorti á hjúkrunarrýmum.Dánir 90 ára 14 vikur


44% fleiri misstu fóstrið á fyrstu 8 til 13 vikum meðgöngu

mRNA Covid bóluefnin voru ekki reynd á ófrískum í þeim takmörkuðu klínísku rannsóknum sem gerðar voru áður en efnin voru tekin í notkun. Sú staðreynd hafði ekki áhrif á ráðleggingu heilbrigðisyfirvalda sem hvöttu vanfærar til að þiggja bólusetningu. Athugun (óritrýnd) sem náði til 220.000 þungana á árunum 2016 til 2022 í Ísrael leiðir í ljós að af hverjum 100 sem þáðu mRNA bólusetningu komnar 8 til 13 vikur á leið misstu 13 fóstrið samanborið við 9 fósturlát sem gera má ráð fyrir á fyrsta þriðjungi meðgöngu.Vanf nidurst


Opnum Íslenska gagnagrunninn eins og Tékkar

Tékkneska reynslan af mRNA Covid bóluefnunum sést á myndinni. Á meðan Covid gekk yfir var dánartíðni óbólusettra lægri en þeirra bólusettu. Eftir að örvunarbólusetningar hefjast vex dánartíðni þeirra bólusettu í samanburði við þá óbólusettu. Í...

Gefum Ivermectin séns

Hversu margir Íslendingar eiga við heilsufarsleg vandamál að stríða í kjölfar Covid vegna bannsins á Ivermectin á fyrstu misserum sjúkdómsins? Hefur bannið á notkun Ivermectin orðið einhverjum Íslendingum að fjörtjóni? Hversu margir krabbameinssjúklingar...

Trefjakenndir strimlar í æðum

Samtök útfararstjóra í Tennessee ríki í Bandaríkjunum eru þau fyrstu sem staðfesta opinberlega tilvist hvítra trefjakenndra strimla í æðum látinna sem var óþekkt fyrirbæri fyrir 2021 eða áður en fjöldabólusetningarnar við Covid-19 hófust. Starfsemi á...

Vitsmunaleg hrörnun í boði yfirvalda

Niðurstöður Japanskrar rannsóknar, sem hafði að markmiði að kanna hvort gaddapróteinið (SARS-CoV-2 spike protein) fyndist í heilavef sjúklinga sem fengið höfðu heilablóðfall í kjölfar mRNA bólusetningar, leiddu í ljós tilvist próteinsins í innri...

Bólusettir 41% fleiri daga frá vinnu

Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar voru Covid bólusettir 41% fleiri daga frá vinnu vegna Covid veikinda en þeir óbólusettu. Önnur rannsókn afsannar endurteknar fullyrðingar um að bóluefnin hafi bjargað fjölda mannslífa, en liðlega 70% dauðsfalla í heiminum...

Ein fjölmargra birtingarmynda

Íslenskar tölur um þróun útgjalda vegna krabbameinslækninga eru ekki aðgengilegar en vísbendingar um aukin útgjöld má sjá í mikilli aukningu fjölda nýrra tilvika ásamt verulegri fjölgun látinna af völdum illvígs krabbameins samkvæmt dánarmeinaskrá....

Hæsta umframdánartíðni í Evrópu þrjú ár samfellt

Að heilbrigðisráðherra njóti trausts í embætti vekur furðu ef horft er til árangurs ráðherrans í starfi landlæknis á liðnum árum þar sem Ísland er með hæsta aldursstaðlað hlutfall umframdauðsfalla í Evrópu á hverju ári síðustu þrjú árin. Á efri myndinni...

Næsta síða »

Höfundur

Þorgeir Eyjólfsson
Þorgeir Eyjólfsson

Höfundur er eftirlaunaþegi

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband
OSZAR »